Efnahagslegur ávinningur ferðaþjónustu til eflingar byggðar á norðurslóðum - RETURN
RMF tekur þátt í verkefni sem rannsakar hvort ferðamannaskattur geti verið grundvöllur sjálfbærar framtíðar samfélaga á norðlægum slóðum. Verkefnið ber heitið Regenerative Economic Transfers for Universal Resilience in the North – RETURN og er styrkt af Interreg áætlun Evrópusambandsins, The Northern Periphery and Arctic (NPA).
RETURN er þriggja ára samstarfsverkefni átta rannsóknastofnana og háskóla á NPA-svæðinu og hófst 1. apríl 2025. Markmið þess er að efla getu samfélaga til að þróa ferðaþjónustu sem nærandi (regenerative) afl sem styrkir byggð og samfélag til framtíðar.
Ferðaþjónusta er orðin einn helsti drifkraftur efnahagsþróunar á norðurslóðum en þessi vöxtur hefur einnig skapað áskoranir. Sveitarfélög hafa bent á að aukin ferðaþjónusta valdi víða miklu álagi á innviði sem kalli á kostnaðarsamar umbætur án þess að tekjur fylgi á móti.
Lykilmarkmið verkefnisins er að aðstoða sveitarfélög og yfirvöld við að þróa gagnsæjar og skilvirkar aðferðir til að nýta tekjur af ferðaþjónustu í innviðauppbyggingu, náttúruvernd og bætta þjónustu. Verkefnið stuðlar að sanngjarnri dreifingu ávinnings ferðaþjónustu og aukinni ábyrgðarkennd og þátttöku ferðamanna.
RETURN-verkefnishópurinn samanstendur af sérfræðingum frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum, Svíþjóð, Noregi, Írlandi, Skotlandi og Finnlandi. Verkefnið er leitt af háskólanum í Lapplandi í Rovaniemi en fulltrúar RMF í RETURN eru Dr. Johannes Welling, sérfræðingur [hwelling@rmf.is] og Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, forstöðumaður RMF [gudrunthora@rmf.is]. Aðrir samstarfsaðilar RMF í verkefninu eru Samband íslenskra sveitarfélaga og Markaðsstofa Vesturlands.