Ímynd Íslands í kynningarefni ferðaþjónustunnar
Nýverið kom út hjá RMF skýrsla um ímynd Íslands í kynningarefni ferðaþjónustunnar. Skýrslan, sem er á ensku hefur titilinn Tourist images of Iceland: A regional comparasion of tourism promotional material. Í henni segir frá greiningu á myndnotkun í kynningarefni ferðaþjónustunnar bæði af hálfu hins opinbera (Íslandsstofa og markaðsstofur landshlutanna) sem og ferðaþjónustufyrirtækja. Vinnan er að hluta framhald greiningar sem framkvæmd var á vegum RMF árið 2011 þar sem myndefni norðlenskra markaðsaðila var til skoðunar.
Höfundur skýrslunnar Tourist images of Iceland er Dennis Hermans, meistaranemi í ferðamálafræðum við Wageninger háskóla í Hollandi, en skýrslan er hluti starfsnáms sem hann hefur sinnt við RMF undanfarna mánuði.
Í skýrslunni kemst Dennis að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að mest fari fyrir myndum af náttúru í kynningar- og markaðsefni allra svæða landsins, megi engu að síður finna umtalsverðan mun á áherslum. Þar geti til að mynda munað um hvort birtar eru myndir af ósnortinni náttúru eður ei, hvort áhersla sé á nærmyndir eða loftmyndir; friðsæl stöðuvötn og grónar fjallshlíðar eða kröftuga fossa og skriðjökla. Þá er ónefnt að nokkur munur kemur fram á notkun myndefnis umfram náttúru, svo sem tengdu menningu, listum, sögu og afþreyingu.
Hér má nálgast skýrsluna á PDF formi.
RMF þakkar Dennis fyrir samveruna undanfarna mánuði og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.